Velkomin til Voga

Vogar er kauptún sem liggur miðja vegu milli Keflavíkur og Reykjavíkur. Staðurinn kemur við þegar við sögu á landnámsöld og er hans m.a. getið í Landnámabók. Líkt og með flestar aðrar byggðir á Reykjanesi er saga Voga samofin útgerð og fiskvinnslu. Öldum saman var höfnin í Vogum miðstöð fyrir hin fengsælu fiskimið útaf Vogastapa sem gengu undir nafninu Gullkistan.

Um síðustu aldamót bjuggu í Vogum og Vatnsleysustrandarhreppi um 750 manns eða þrefalt fleiri en í Keflavík. En á skömmum tíma fækkaði fólki verulega þegar höfnin reyndist of lítil fyrir vélbáta, sem voru óðum að taka við af opnu sex- og áttæringunum. Í dag búa í hreppnum um á bilinu 900 til 1000 manns  og byggja flestir afkomu sína á fiskveiðum og matvælaiðnaði.

Sundlaug

Í Vogum er ný og glæsileg sundlaug sem og heitir pottar, gufuböð, sólarlampar og þrektæki. Við laugina er skjólgóð brekka þar sem upplagt er að sleikja sólina á góðviðrisdögum.

Eitt og annað áhugavert

Í Vogum eru fallegar tjarnir og klettar þar sem töluvert er um fuglalíf. Náttúruunnendur ættu því að notfæra sér veginn sem liggur í gegn um hreppinn. Hann er nú lagður bundnu slitlagi og hefur það einnig færst í vöxt að hjólreiðafólk notfæri sér veginn í stað Reykjanesbrautar, enda umferð þar minni og hægari.

Vogastapi


Gamla þjóðleiðin um Suðurnesin lá um Vogastapa sem er heimkynni fjölda sjófugla. Fleiri hafa þó gert sig heimakomna í Vogastapa en sjófuglar, því sagan segir að þar búi draugur sem gengur undir nafninu Stapadraugurinn.. Hann er sagður hauslaus og ganga með höfuðið undir hendinni og nærast á óvarkárum vegfarendum. Menn ættu því að fara þar um með gát!

Vogatjörn

Vogatjörn er aðfallstjörn sem endur og aðrir vatnafuglar gera að heimkynnum sínum yfir varptímann. Þar fer æðarfuglinn fremstur í flokki og er æðartúnsþekja talsverð á svæðinu.

Kálfatjarnarkirkja


Krikja þessi var reist árið 1893 og er staðsett á miðri Vatnsleysuströnd. Krikjan er sannkölluð völundarsmíði og er ein stærsta sveitakirkja á landinu.

Staðarborg


Þetta mikla steinhleðsluvirki sem á árum áður var notað sem fjárrétt, er staðsett á miðri heiðinni á milli Kálfatjarnarkirkju og Reykjanesbrautar.Í bjartvirðri er útsýni mjög fallegt frá Staðarborg, mosavaxnar hraunbreiður á aðra hönd og fagurblár Faxafóinn á hina, þar sem næviþakinn Snæfellsjökullinn rís upp úr sjóndeildarhringnum í um 100 km fjarlægð.

Vatnsleysustrandarvegur

Þessi friðsæli sveitavegur er um 12 km langur og er merktur á kortum sem þjóðvegur 421. Eins og áður segir er vegurinn allur lagður bundnu slitlagi sem gerir hann þægilegan yfirferðar og sérlega ákjósanlegan hjólreiðafólki.




Hotel Vogar, Stapavegur 7, 190 Vogar, Iceland - Tel: +354 866 4664 - Fax: +354 424 6735 - hotelvogar@simnet.is