name
 
Afhverju Hótel Vogar?

Hótel Vogar er góður valmöguleiki, jafnt fyrir innlenda sem erlenda ferðamenn. Hótel Vogar er staðsett í Vogum á Vatnsleysuströnd og býður fram mjög góða aðstöðu á hóflegu verði. Mótelið er í 24 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík og 14 mínútna akstur er að flugvellinum, sem gerir mótelið að góðum viðkomustað ferðalanga sem hyggja á flug frá landinu jafnt sem þeirra sem vilja gefa sér tíma til að kynnast fegurð Suðurnesja og heimsækja Bláa Lónið, sem er í 12 mínútna fjarlægð, sé ferðast með bíl.



 

  • Viðkunnanleg og snyrtileg herbergi
  • Amerísk rúm
  • Hófleg verðlagning
  • Gervihnattasjónvarp *(CNN, BBC, France-5, ARD o.fl.)
  • Sérstaklega sniðin gluggatjöld til að draga úr birtu og tryggja góðan nætursvefn, jafnvel á björtum sumarnóttum.
  • Tvöfaldir veggir tryggja friðsama dvöl.
* Vinsamlegast takið fram þegar pantað er, ef óskað er eftir sjónvarpi, þar sem ekki eru tæki á öllum herbergjum.



Hotel Vogar, Stapavegur 7, 190 Vogar, Iceland - Tel: +354 866 4664 - Fax: +354 424 6735 - hotelvogar@simnet.is